
Naggur Plús+ er sérstaklega hannaður sem undirstaða/burðareining undir sumarhús og mannvirki þar sem krafist er nægjanlegs styrks samkvæmt kröfum í byggingareglugerð. Naggur Plús+ er grafinn niður í frostfría fyllingu og þjappað að honum. Naggur plús+ hentar vel sem stólpi ofanjarðar vegna stöðugleika hans og passar vel fyrir afmörkun á svæðum.
Í toppi Naggs Plús+ er innsteypt 20mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 10mm járnagrind sem hann er styrktur með.
Plata sem á eru göt fyrir skrúfur og bolta til festingar. Undir Plattanum er soðin 20mm langró sem passar fyrir Snitttein sem skrúfast í topp Dverganna, þá er hægt að hæða- og stefnustilla Plattann svo hann passi í lárétta stöðu hlutarins sem á hann verður festur.
Plattinn passar vel til festingar timburs, bjálka eða annarra hluta ofan á Dvergana, t.d. bekki og borðplötu.