Viðskiptaskilmálar
1. Almenn ákvæði
Viðskiptaskilmálar þessir gilda um öll viðskipti á vefsíðunni islandshus.is. Rekstraraðili er Íslandshús ehf., kt. 571085-2329, Bogatröð 13, 262 Reykjanesbæ.
Með því að nýta vefsíðuna og/eða ganga frá kaupum telst kaupandi hafa samþykkt skilmála þessa í heild sinni.
2. Vörur og þjónusta
Seljandi sérhæfir sig í sölu á forsteyptum einingum og tilheyrandi fylgihlutum, auk þess að sérhanna vörur og framkvæma breytingar á vörum samkvæmt óskum viðskiptavina.
Vörulýsingar og myndir eru birtar til upplýsinga og geta frávik átt sér stað.
3. Verð og greiðslur
Öll verð geta breyst án fyrirvara. Komi upp augljósar villur í verðlagningu áskilur seljandi sér rétt til að hafna eða rifta pöntun og endurgreiða kaupanda að fullu.
4. Afhending
Afhendingartími getur verið breytilegur eftir eðli vöru. Sendingarkostnaður bætist við nema annað sé tekið fram.
Kaupandi ber ábyrgð á að veita réttar upplýsingar.
5. Skilaréttur
Skilaréttur er bundinn því skilyrði að vara sé í upprunalegu og óbreyttu ástandi.
Kaupandi ber allan kostnað vegna skila.
Seljandi áskilur sér rétt til að hafna skilum eða draga frá endurgreiðslu ef vara er ekki í fullnægjandi ástandi.
6. Undanþágur frá skilarétti
Eftirfarandi vörur og þjónusta eru undanskildar skilarétti:
- Metrarvara
- Sérpantanir
- Sérhannaðar vörur
- Vörur sem hafa verið breyttar
- Þjónusta eða vinna sem hefur þegar verið framkvæmd
7. Ábyrgð og gallar
Kaupandi skal tilkynna um galla án tafar.
Ábyrgð seljanda er í samræmi við gildandi lög um neytendakaup eftir því sem við á.
8. Takmörkun ábyrgðar
Seljandi ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, rekstrartapi eða tjóni sem rekja má til rangrar notkunar eða utanaðkomandi atvika.
9. Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
10. Breytingar á skilmálum
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara. Nýjustu skilmálar eru ávallt birtir á islandshus.is vefsíðunni