Skref 1

Jarðvegur

Fyrst þarf að kanna hvort þörf sé á að skipta um jarðveg. Tegund jarðvegs hefur bein áhrif á hvaða undirstöður henta.

Þarf jarðvegsskipti

Moldarkenndur og gljúpur

Jarðvegur sem er þéttur, tekur í sig mikið vatn og lyftist við frost. Nauðsynlegt er að grafa holur og skipta um jarðveg í kringum undirstöðurnar.

Dýpt á holum: 60–120 cm eða niður fyrir frostmark. Fylla með möl og þjappa vel.

Tilbúið til notkunar

Frostlaus fylling

Jarðvegur sem hleypir vatni í gegnum sig og lyftir sér ekki í frosti. Hægt er að velja undirstöður sem fara beint ofan á jarðveginn.

Engrar jarðvegsskipta þörf — undirstöður fara beint á yfirborðið.

Skref 2

Undirstöður

Stærð undirstaða fer eftir jarðvegi og notagildi. Veldu þann Dverg sem hentar þínum aðstæðum.

Álfur

30 cm hár 30 kg Togþyngd 70 kg

Hentugur þegar jarðvegur er frostlaus. Settur beint ofan á fyllingu — engrar graftar þörf.

Purkur

60 cm hár 50 kg Togþyngd 300 kg

Fyrir moldarkenndan jarðveg — grafinn niður og skipt um jarðveg í kringum hann.

Teitur

80 cm hár 65 kg Togþyngd 600 kg

Sterkasta undirstaðan — fyrir moldarkenndan jarðveg, háar girðingar og skjólveggi.

Sólpallur

Álfur eða Purkur. Bil ~2 m milli undirstaða.

Grindverk

Purkur eða Teitur. 120–140 cm milli staura.

Skjólveggir

Teitur 80 cm — besta togþolið.

Togþyngd — þegar grafnir niður

Hönnun Dverganna margfaldar togþolið þegar þeir eru grafnir.

70 kg
Álfur
30 kg eiginþyngd
300 kg
Purkur
50 kg eiginþyngd
600 kg
Teitur
65 kg eiginþyngd
Skref 3

Dregarar, þverbitar og klæðning

Hvert lag gegnir sínu hlutverki í uppbyggingu pallsins.

Dregarar

Gagnvarin fura, festir með Bjálkaskó 45 á undirstöðurnar. Auðvelt er að hæða- og stefnustilla. Bil milli dregara: 1,2–1,8 m (algengast 1,6 m).

45×145 / 195 mm
Gagnvarin fura

Þverbitar

Settir þvert á dregarana, festir með þakásanker. Millibil: 40–60 cm (algengast 55 cm).

45×95 / 120 mm
Gagnvarin fura

Klæðning

Fest með ryðfríum skrúfum. 5 mm bil milli borða fyrir vatn og þenslu í timbrinu.

27×95 mm
Eða eftir vali

Þakásanker

Til að festa þverbitana við dregarana. Örugg og traust festing sem tryggir stöðugleika.

Festingarefni
Skref 4

Dvergareiknir

Reiknaðu út hvað þú þarft marga Dverga undir pallinn þinn.

Undirstöðu reiknivél

Reiknað er með ferköntuðum palli

Forsendur
Niðurstöður
12
undirstöður
25
m² stærð
4
stólpar á lengd
3
stólpar á breidd
3
dregarar

Pöntun

12 stk.Dvergar (Álfur / Purkur)
12 stk.Bjálkaskór 45
12 stk.Snittteinn 100 mm
12 stk.Bolti M10 × 60 mm
Skref 5

Samsettar lausnir

Heildarlausn með öllu sem þarf til að festa grind pallsins niður.

Undir sólpallinn — Álfur með Bjálkaskó 45

  • Álfur 30 cm undirstaða
  • Bjálkaskór 45 mm
  • Snittteinn 100 mm
  • Bolti M10 × 60 mm

Undir sólpallinn — Purkur með Bjálkaskó 45

  • Purkur 60 cm undirstaða
  • Bjálkaskór 45 mm
  • Snittteinn 100 mm
  • Bolti M10 × 60 mm

Tilbúin/n að byggja?

Skoðaðu allar vörurnar okkar eða hafðu samband ef þú hefur spurningar.

Skoða vefverslun