Borgaralda

Borgaralda er ný og framúrskarandi lausn í hönnun hraðahindrana sem sérstaklega er þróuð með íslenskar aðstæður í huga. Lausnin er sveigjanleg í stærð, framleitt úr einingum sem hægt er að raða saman eftir þörfum.

Lausnin markar tímamót í uppbyggingu, endingu og líftíma hraðahindrana. Hönnun Borgaröldu tekur á helstu áskorunum sem fylgja hefðbundnum hraðahindrunum, þar á meðal framkvæmdartíma, slitþoli og viðhaldi.

Með áherslu á hagkvæmni og gæði býður Borgaralda upp á lausn sem dregur úr viðhaldsþörf og stór eykur endingartíma. Borgaralda er þróuð af Íslandshús í nánu samstarfi við sérfræðinga úr ólíkum greinum.

Við þróunina var stuðst við viðurkenndar leiðbeiningar, þar á meðal handbók íslensku og norsku Vegagerðarinnar, til að tryggja hámarks gæði og öryggi.

Markmiðið er að vegfarendur upplifi öryggi án óþæginda

Forsteypt hraðahindrun

Styttri framkvæmdatími

Forsteyptar einingar eru tilbúnar til uppsetningar og draga úr framkvæmdartíma.

Hagkvæmur kostur

Lægri heildarkostnaður vegna lengri endingartíma og minni viðhalds.

Sveigjanleg lausn

Breytanleg lausn sem hentar mismunandi stærðum vega.

Minna viðhald

Hvítir innsteyptir fletir og rauð steypa minnka viðhaldsþörf

Innkeyrsluflötur

50 cm innkeyrsluflötur beggja megin tryggir að álagið þegar dekkið fer upp á hraðahindrunina lendi ekki á samskeytum milli malbiks og steypu. Það eykur endingartíma, ver samskeytin betur og dregur úr sliti og pollamyndun.

Hvít steypa

Yfirborðsmerkingar eru steyptar úr hvítri steypu með ísettu glerkurli. Það dregur úr viðhaldi þar sem ekki þarf að mála fletina, auk þess sem glerkurlið skapar endurskin sem eykur sýnileika í umferð.

Rauðleit steypa

Rauðlituð steypa gerir hraðahindrunina sýnilegri. Þar sem liturinn er í steypunni heldur hún sýnileika þrátt fyrir slit.

Stýrisprófíll

Stýrisprófíll úr heitgalvanhúðuðu stáli auðveldar niðursetningu og heldur einingunum tryggilega á sínum stað. Hann nýtist jafnframt sem lagnaleið í gegnum hraðahindrunina.

aksturseining

Borgaralda 30

  • Heildarlengd 521cm
  • Heildarhæð 28cm
  • Heildarbreidd 115cm
  • Innkeyrsluflötur 50cm
  • Lengd hækkunar 400cm
  • Hæð hækkunar 10cm
  • Niðursetningardýpt 18cm
  • Þyngd 3.210kg

ENDAEINING

Borgarfold 30

  • Heildarlengd 521cm
  • Heildarhæð 28cm
  • Heildarbreidd 52cm
  • Innkeyrsluflötur 50cm
  • Lengd hækkunar 400cm
  • Hæð hækkunar 10cm
  • Niðursetningardýpt 18cm
  • Þyngd 1.215kg

Borgaralda 30

Forsteypt hraðahindrun með 50 cm innkeyrsluflöt og bungu sem er 400cm löng og 10cm há.

Hraðahindrunin er steypt úr hágæða steypu C45(Mpa) sem er lituð með rauðum lit.

Í einingunni eru tveir innsteyptir ferningar 50x50cm framleiddir úr hvítri ofursteypu með ísettu glerkurli til að ná endurskins áhrifum.

Í einingunni eru 2 stk. 24mm ryðfríar múrhulsur til hífinga.

Borgaralda 30 hraðahindrun

Borgaralda 30 hraðahindrun

Venjulegt verð 0 kr.
Söluverð 0 kr. Venjulegt verð
Skoða vöru
slider image

Borgarfold 30

Forsteyptur endi á hraðahindrun með 50cm innkeyrsluflöt og bungu sem er 400cm löng
og 10cm há.

Hraðahindrunin er steypt úr hágæða steypu C45(Mpa) sem er lituð með rauðum lit.

Í einingunni eru 2 stk. 24mm ryðfríar múrhulsur til hífinga.

Borgarfold 30 hraðahindrun endi

Borgarfold 30 hraðahindrun endi

Venjulegt verð 0 kr.
Söluverð 0 kr. Venjulegt verð
Skoða vöru
slider image