Spurt og svarað

Spurt og svarað

Já, við sendum vörur um allt land. Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um sendingarkostnað og afgreiðslutíma.

Fjöldi dverga fer eftir ýmsu, t.d. stærð og lögun sólpallsins, stærð dregara sem notast er við og staðsetningu sólpalls (upp við húsvegg eða ekki). Þumalputtareglan er 1 dvergur á hverja 2m², miðað við 160cm á milli dverga, en það getur verið breytilegt eins og áður sagði.

Sem dæmi gæti 64m² ferkantaður pallur (8m x 8m), sem liggur ekki upp að húsvegg, haft allt frá 120cm upp í 200cm bil á milli dverga. Hver dvergur getur dekkað allt frá 1m² upp í 2,5m². En það fer eftir stærð dregara og hversu mikið pallurinn má „dúa“.

Liggi sólpallurinn hinsvegar upp að húsvegg sparast ein röð af dvergum og kemur þá dregari langsum á vegginn í staðinn. Og því stærri sem pallurinn er því færri dverga þarftu á hvern fermetra ásamt því að lögun pallsins hefur áhrif á fjölda stólpa sem þarf undir hann.

Almennt er miðað við 120–200cm bil á milli dverga, en það fer eftir stærð dregara og burðarkröfum. Hafðu samband við okkur til að fá ráðgjöf miðað við þitt verkefni.

Dvergarnir spara þér tíma og vinnu — engin þörf á mótum, steinsteypu eða biðtíma eftir herðingu. Þeir eru tilbúnir til notkunar strax og komnir á sinn stað.

Já, jarðvegur skiptir máli. Best er að undirstöðurnar standi á föstu undirlagi. Hafðu samband við okkur til að fá ráðgjöf um jarðvegsaðstæður á þínum stað.

Já! Við bjóðum upp á ráðgjöf þar sem við skoðum þínar þarfir og stærð verkefnis. Hafðu samband í síma eða tölvupósti og við hjálpum þér að velja réttu vörurnar.

Dvergarnir eru hönnuð til að veita góða festu í íslensku veðurfari. Snittteinn og undirstöður vinna saman til að dreifa álagi jafnt og tryggja stöðugleika pallsins.