Fara í upplýsingar um vöru
1 af 1

Undir sumarhúsið - Naggur plús+ með Bjálkaskó Kraft

Venjulegt verð 110.300 kr.
Söluverð 110.300 kr. Venjulegt verð
293.18  kg

Á lager

Naggur Plús+ er sérstaklega hannaður sem undirstaða/burðareining undir sumarhús og mannvirki þar sem krafist er nægjanlegs styrks samkvæmt kröfum í byggingareglugerð. Naggur Plús+ er grafinn niður í frostfría fyllingu og þjappað að honum. Naggur plús+ hentar vel sem stólpi ofanjarðar vegna stöðugleika hans og passar vel fyrir afmörkun á svæðum.

Í toppi Naggs Plús+ er innsteypt 20mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 10mm járnagrind sem hann er styrktur með. 

Sterkur Bjálkaskór með götum á hliðum fyrir skrúfur og bolta til festinga.
Undir botn Bjálkaskósins er soðin 20mm langró sem passar fyrir M20mm Snitttein sem skrúfast í topp Dvergsins NAGG og NAGG plús+ og er þá hægt að hæða- og stefnustilla Bjálkaskóinn svo hann passi í lárétta stöðu bjálkans sem í hann verður festur, t.d. bjálka undir sumarhúsið og aðrar undirstöðugrindur. 

Inni í þessu setti eru boltar til þess að festa dregara við skóinn sem eru þó ekki á myndinni.

Tæknilegar upplýsingar
Þyngd
Hæð
170 cm
Breidd
60 cm
Lengd
60 cm
Undir sumarhúsið - Naggur plús+ með Bjálkaskó Kraft

Undir sumarhúsið - Naggur plús+ með Bjálkaskó Kraft

Venjulegt verð 110.300 kr.
Söluverð 110.300 kr. Venjulegt verð