
Teitur plús+ hentar vel sem stólpi ofanjarðar vegna stöðugleika hans og passar vel fyrir afmörkun á svæðum eða undir skilti hverskonar. Stólpinn hentar einnig vel sem undirstaða fyrir grindverk og/eða girðingu og sem undirstaða undir smáhýsi.
Teitur plús+ er málaður í Íslandshús gulum og á hann er límt endurskin sem gerir hann mun sýnilegri.
Í toppi Teits plús+ er innsteypt 16mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 8mm
járnagrind sem þeir eru styrktir með. Ofan á stólpann er hægt að festa ýmsar tegundir af sérhönnuðum festingajárnum með 16mm bolta eða snittteini sem passar í innsteyptu múrhulsuna í toppi hans.
Tæknilegar upplýsingar
Hæð
90 cm
Breidd
30 cm
Breidd botn
50 cm
Lengd Botn
50 cm
Breidd toppur
15 cm
Lengd toppur
15 cm
Fylgiskjöl