Fara í upplýsingar um vöru
1 af 1

Vörunúmer:d081

Teitur Plús+

Venjulegt verð 45.330 kr.
Söluverð 45.330 kr. Venjulegt verð
115.0  kg

Teitur Plús+ hentar vel sem stólpi ofanjarðar vegna stöðugleika hans og passar vel fyrir afmörkun á svæðum eða undir skilti hverskonar. Stólpinn hentar einnig vel sem undirstaða fyrir grindverk og/eða girðingu og sem undirstaða undir smáhýsi.

Í toppi Teits Plús+ er innsteypt 16mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 8mm
járnagrind sem þeir eru styrktir með. Ofan á stólpann er hægt að festa ýmsar tegundir af sérhönnuðum festingajárnum með 16mm bolta eða snittteini sem passar í innsteyptu múrhulsuna í toppi hans. 

Frábær hönnun, styrkur og léttleiki tryggja betri undirstöðu og festu í jarðvegi. Hönnun stólpanna skilar um 35% léttari einingum en sléttir stólpar sem gerir þá meðfærilegri og tryggir jafnframt mun betri festu í jarðvegi en hefðbundnar undirstöður. Form þeirra tryggir á móti hámarks festu í jarðvegi sem fæst með því að nýta þyngd jarðvegsins næst þeim. Þannig taka þeir með sér jarðveg umhverfis þá sem er oft margföld eigin þyngd þeirra. Í DVERGANA er notuð sjálfútleggjandi C45 (Mpa) gæðasteypa sem er mjög veðurþolin og uppfyllir miklar kröfur um styrk og endingu fyrir forsteyptar einingar sem verða fyrir miklu veðurálagi, úrkomu og frosti.
Tæknilegar upplýsingar
Þyngd
115.0 kg
Hæð
90 cm
Breidd botn
50 cm
Lengd Botn
50 cm
Breidd toppur
15 cm
Lengd toppur
15 cm
Togþyngd
1300 kg

3D CAD Model

Teitur Plús+

Teitur Plús+

Venjulegt verð 45.330 kr.
Söluverð 45.330 kr. Venjulegt verð