
Sóley er meðfærileg umferðareyja sem hentar vel til að afmarka hraðalækkun innanbæjar með því að setja tvær eyjur sitthvoru megin á götuna og þrengja þannig aksturslínu og hægja á umferð.
Í eyjunni eru innsteyptar 7stk 16mm heitgalvanhúðaðar múrhulsur sem tengjast tvöfaldri K189/6mm járnagrind í eyjunum.
Á eyjuna passar Skiltaboginn, en einnig er auðvelt að festa skilti á eyjuna með öðrum skiltaundirstöðum t.d. 1½” eða 2” röri og röraskó sem má festa í hverja sem er af 7 múrhulsum í toppi eyjunnar. SÓLEY hentar líka fyrir margskonar aðrar umferðarmerkingar og leiðbeiningaskilti.
Á Sóley er hægt að fá skiltaspjald með sérhönnuðu merki fyrir þitt sveitafélag eða fyrirtæki.
Þau eru sérprentuð hverju sinni.
Eyjan er afhent máluð í Íslandshús gulum.
Tæknilegar upplýsingar
Hæð
14 cm
Breidd botn
90 cm
Lengd Botn
180 cm
Breidd toppur
90 cm
Lengd toppur
180 cm
Fylgiskjöl