Fara í upplýsingar um vöru

Skiltafesting RF – Heilt sett

Skiltafesting RF – Heilt sett

Venjulegt verð 5.270 kr.
Söluverð 5.270 kr.
0,70  kg
Á lager

Lýsing

Vönduð skiltafesting úr ryðfríu stáli fyrir örugga og endingargóða uppsetningu umferðarskilta og annarra skilta á  galvanhúðuð stálrör og álrör.

Festingin samanstendur af skiltaskúffu og röraklemmu sem eru hannaðar til að passa saman. Hægt er að velja á milli þriggja lengda af skiltaskúffum og fjögurra stærða af röraklemmum eftir stærð skiltis og þvermáli rörsins.

Ryðfrítt stál og vönduð tæringarvörn

Röraklemman er framleidd úr 3 mm þykku ryðfríu stáli. Bæði röraklemma og skiltaskúffa eru með veðurþolnum EPDM-gúmmíborðum sem aðskilja málma og draga úr hættu á galvanískri tæringu, meðal annars við uppsetningu á heitgalvanhúðuð stálrör.

Skiltaboltarnir eru úr ryðfríu stáli og með plastskinnum sem koma í veg fyrir beina snertingu boltanna við álskilti og draga þannig úr hættu á tæringu.

Veldu rétta festingu

1. Veldu lengd skiltaskúffu eftir bili milli boltagata í skiltinu (c/c):

200 mm skiltaskúffa – c/c 170 mm
265 mm skiltaskúffa – c/c 235 mm
520 mm skiltaskúffa – c/c 410 eða 490 mm

2. Veldu röraklemmu eftir ytra þvermáli rörsins:

1½" rör – Ø 48,3 mm
2" rör – Ø 60,3 mm
2½" rör – Ø 76,1 mm
3" rör – Ø 88,9 mm

Rörastærðir miðast við hefðbundin galvanhúðuð stálvatnsrör samkvæmt EN 10255.

Innihald settsins

1 skiltaskúffa í valinni lengd.
1 röraklemma úr 3 mm ryðfríu stáli fyrir valið rörþvermál.
EPDM-gúmmíborðar í skiltaskúffu og röraklemmu.
2 ryðfríir skiltaboltar M6 × 20 mm, hvor með 2 plastskinnum, skinnu, spenniskinnu og ró.
1 ryðfrír tengibolti M8 × 40 mm með skinnu, spenniskinnu og ró.

Heilt festisett: Allur nauðsynlegur festibúnaður til að festa skiltið við rörið fylgir með. Skilti og rör eru ekki innifalin.

Skiltafesting RF – Heilt sett

Skiltafesting RF – Heilt sett

Venjulegt verð 5.270 kr.
Söluverð 5.270 kr.