
Naggur plús+ er sérstaklega hannaður sem undirstaða/burðareining undir sumarhús og mannvirki þar sem krafist er nægjanlegs styrks samkvæmt kröfum í byggingareglugerð. Naggur plús+ er grafinn niður í frostfría fyllingu og þjappað að honum. Naggur plús+ hentar vel sem stólpi ofanjarðar vegna stöðugleika hans og passar vel fyrir afmörkun á svæðum.
Naggur plús+ er málaður í Íslandshús gulum sem gerir hann mun sýnilegri.
Í toppi Naggs plús+ er innsteypt 20mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 10mm járnagrind sem hann er styrktur með. Ofan á Nagg plús+ er hægt að tengja sérsmíðaðan 5mm þykkan KRAFT Bjálkaskó eða Vinkil með 20mm Snittteini.
Tæknilegar upplýsingar
Hæð
135 cm
Breidd botn
60 cm
Lengd Botn
60 cm
Breidd toppur
20 cm
Lengd toppur
20 cm
Fylgiskjöl