
Naggur er sérstaklega hannaður sem undirstaða/burðareining undir sumarhús og mannvirki þar sem krafist er nægjanlegs styrks samkvæmt kröfum í byggingareglugerð.
Naggur er grafinn niður í frostfría fyllingu og þjappað að honum.
Í toppi Naggs er innsteypt 20mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 10mm járnagrind sem hann er styrktur með.
Ofan á Nagg er hægt að tengja sérsmíðaðan 5mm þykkan KRAFT Bjálkaskó eða Vinkil með 20mm Snittteini.
Sterkur Bjálkaskór með götum á hliðum fyrir skrúfur og bolta til festinga.
Undir botn Bjálkaskósins er soðin 20mm langró sem passar fyrir M20mm Snitttein sem skrúfast í topp Dvergsins NAGG og NAGG plús+ og er þá hægt að hæða- og stefnustilla Bjálkaskóinn svo hann passi í lárétta stöðu bjálkans sem í hann verður festur, t.d. bjálka undir sumarhúsið og aðrar undirstöðugrindur.
Inni í þessu setti eru boltar til þess að festa dregara við skóinn sem eru þó ekki á myndinni.