Fara í upplýsingar um vöru
1 af 1

Vörunúmer:d031

Álfur Plús+

Venjulegt verð 37.180 kr.
Söluverð 37.180 kr. Venjulegt verð
80.0  kg

Álfur plús+ hentar vel sem stólpi ofanjarðar vegna stöðugleika hans og passar vel sem undirstaða undir sólpalla þar sem skipt hefur verið um jarðveg og hann frostfrír eða til afmörkunar á svæðum og undir skilti hverskonar.

Í toppi Álfs plús+ er innsteypt 16mm heitgalvanhúðuð múrhulsa sem tengist öflugri 8mm járnagrind sem þeir eru styrktir með. Ofan á stólpann er hægt að festa ýmsar tegundir af sérhönnuðum festingajárnum með 16mm bolta eða snittteini sem passar í innsteyptu múrhulsuna í toppi hans.

Frábær hönnun, styrkur og léttleiki tryggja betri undirstöðu og festu í jarðvegi. Hönnun stólpanna skilar um 35% léttari einingum en sléttir stólpar sem gerir þá meðfærilegri og tryggir jafnframt mun betri festu í jarðvegi en hefðbundnar undirstöður. Form þeirra tryggir á móti hámarks festu í jarðvegi sem fæst með því að nýta þyngd jarðvegsins næst þeim. Þannig taka þeir með sér jarðveg umhverfis þá sem er oft margföld eigin þyngd þeirra. Í DVERGANA er notuð sjálfútleggjandi C45 (Mpa) gæðasteypa sem er mjög veðurþolin og uppfyllir miklar kröfur um styrk og endingu fyrir forsteyptar einingar sem verða fyrir miklu veðurálagi, úrkomu og frosti.
Tæknilegar upplýsingar
Þyngd
80.0 kg
Hæð
40 cm
Breidd botn
50 cm
Lengd Botn
50 cm
Breidd toppur
15 cm
Lengd toppur
15 cm
Togþyngd
300 kg

3D CAD Model

Álfur Plús+

Álfur Plús+

Venjulegt verð 37.180 kr.
Söluverð 37.180 kr. Venjulegt verð