{"product_id":"skiltafesting-rf-heilt-sett","title":"Skiltafesting RF – Heilt sett","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eVönduð skiltafesting úr ryðfríu stáli fyrir örugga og endingargóða uppsetningu umferðarskilta og annarra skilta á  galvanhúðuð stálrör og álrör.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFestingin samanstendur af skiltaskúffu og röraklemmu sem eru hannaðar til að passa saman. Hægt er að velja á milli þriggja lengda af skiltaskúffum og fjögurra stærða af röraklemmum eftir stærð skiltis og þvermáli rörsins.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003eRyðfrítt stál og vönduð tæringarvörn\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRöraklemman er framleidd úr 3 mm þykku ryðfríu stáli. Bæði röraklemma og skiltaskúffa eru með veðurþolnum EPDM-gúmmíborðum sem aðskilja málma og draga úr hættu á galvanískri tæringu, meðal annars við uppsetningu á heitgalvanhúðuð stálrör.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eSkiltaboltarnir eru úr ryðfríu stáli og með plastskinnum sem koma í veg fyrir beina snertingu boltanna við álskilti og draga þannig úr hættu á tæringu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eVeldu rétta festingu\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003e1. Veldu lengd skiltaskúffu eftir bili milli boltagata í skiltinu (c\/c):\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e200 mm skiltaskúffa – c\/c 170 mm\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e265 mm skiltaskúffa – c\/c 235 mm\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e520 mm skiltaskúffa – c\/c 410 eða 490 mm\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003e2. Veldu röraklemmu eftir ytra þvermáli rörsins:\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e1½\" rör – Ø 48,3 mm\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e2\" rör – Ø 60,3 mm\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e2½\" rör – Ø 76,1 mm\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e3\" rör – Ø 88,9 mm\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRörastærðir miðast við hefðbundin galvanhúðuð stálvatnsrör samkvæmt EN 10255.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eInnihald settsins\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003e1 skiltaskúffa í valinni lengd.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e1 röraklemma úr 3 mm ryðfríu stáli fyrir valið rörþvermál.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eEPDM-gúmmíborðar í skiltaskúffu og röraklemmu.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e2 ryðfríir skiltaboltar M6 × 20 mm, hvor með 2 plastskinnum, skinnu, spenniskinnu og ró.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e1 ryðfrír tengibolti M8 × 40 mm með skinnu, spenniskinnu og ró.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003eHeilt festisett:\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e Allur nauðsynlegur festibúnaður til að festa skiltið við rörið fylgir með. Skilti og rör eru ekki innifalin.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Íslandshús","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":50059700830279,"sku":null,"price":5270.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0641\/5351\/8151\/files\/heilt-skiltasett_rf_islandshus.png?v=1794329643","url":"https:\/\/www.islandshus.is\/products\/skiltafesting-rf-heilt-sett","provider":"Íslandshús","version":"1.0","type":"link"}